Skýin baða sig yfir byggðinni - „við erum bara að kíkja á leiki mannanna“

27. júní 2025
Í SKÝJUNUM.  Yfirleitt heyrum við af því að baða sig í sólskini en á þessari mögnuðu mynd sem Grafarvogur.net fékk senda til sín í gærkvöldi virðist byggðin og borgarfjallið baða sig í skýjunum. 

Heldur betur lágskýjað.

Myndina tók Pétur Óskar Sigurðsson í gærkvöldi þar sem hann horfir yfir Grafarvoginn og skýin eru nánast eins og þykkur grár mökkur yfir hluta byggðarinnar í Grafarvogi, Kjalarnesi og Esjunni.

Við skýin erum bara að kíkja á leiki mannanna,“ sungu þau í Spilverki þjóðanna og bættu við: „Við skýin erum bara grá, bara grá.

Þessi eru bara ljósgrá, bara ljósgrá. 

Skemmtilegt! - JGH