Athyglisverð orð Friðjóns um að engin skýring finnist á aukinni umferð um Ártúnsholtið
Þau orð Friðjóns R. Friðjónssonar, varaformanns umhverfis- og skipulagsráðs, í frétt mbl.is um Höfðabakkann að engar skýringar hafi fundist á stóraukinni umferð um hverfið í Ártúnsholti eftir framkvæmdirnar við Höfðabakkann í fyrrasumar hafa vakið nokkra athygli.
Flestum finnst skýringin blasa við. Ökumenn sem aka upp Ártúnsbrekkuna á leið í Árbæinn eða Breiðholtið forðast í stórauknum mæli á álagstímum að fara inn í teppuna á Höfðabakkanum. Þeir beygja þess í stað inn í Ártúnsholtið við N1 stöðina á Ártúnshöfða og aka í gegnum hverfið og koma að gatnamótunum við götuna Streng í Ártúnsholti.
í frétt mbl.is af fyrirhuguðum breytingum á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls var haft eftir honum að ekki hafi fundist skýringar á því af hverju umferðin inn í Ártúnshöfðahverfið hafi aukist jafn mikið og raunin sé, en það sé að hluta til ástæðan fyrir því að verið sé að bregðast við nú. Hann bætti því við að íbúar í Ártúnsholti hafi kvartað mjög yfir aukinni umferð um hverfið. „Enginn vilji stuðla að aukinni umferð um íbúðahverfi.“
Vonandi er sú stefna komin til að vera en það hefur verið eindreginn vilji Grafarvogsbúa og kom skýrt fram í umræðunni um þéttingu byggðar í Grafarvogi sem núverandi meirihluti í borginni hefur fallið frá. - JGH

Frétt mbl.is á mánudag um að færa gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls í fyrra horf.



