„Regnbogadyr inn í Grafarvog.“ Helgi Árna með stórfína mynd af regnboga yfir Gullinbrú
8. október 2026
Helgi Árnason, skákfrömuður og fyrrum skólastjóri Rimaskóla, birtir á FB-síðu sinni í dag snilldarmynd af regnboga yfir Grafarvogi.
Með myndinni birtir hann þennan texta: „Regnbogadyrnar inn í Grafarvog.“
Vel orðað.
Gullinbrú er helsta umferðaræðin inn í hverfið okkar góða og dyrnar inn í Grafarvog.
Samkvæmt þjóðtrúnni þykir fylgja því sérstök gæfa að standa undir regnboga eða tækifæri til að láta óskir rætast.
Og hvað þá að búa undir regnboga.
Megi gæfa fylgja Grafarvogi hér eftir sem hingað til.
- JGH

Frábær mynd hjá Helga Árnasyni. „Regnbogadyr inn í Grafarvog.“

