Vegagerðin sýnir sérrými fyrir Borgarlínuna í Grafarvogi. Verður byggð sérstök brú fyrir Borgarlínuna við Gullinbrú?
Við höldum áfram að fjalla um málefni Gullinbrúar eftir frétt okkar fyrir helgi um að Betri samgöngur breyttu skjali á heimasíðu sinni um Borgarlínuna Lotu 5 og tóku út bæði sérrými og deilirými og breyttu skjalinu í hefðbundna aksturleið eftir að fulltrúi á framboðslista Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningarnar hafði samband við nýjan forstjóra Betri samgangna um hádegisbilið á föstudag eftir að frétt okkar birtist um morguninn.
En ekkert fer á milli mála þegar farið er inn á vef Vegagerðarinnar Þar stendur skýrum stöfum:„Borgarlínan, lota 5, felst í að hanna og byggja sérrými fyrir Borgarlínuvagna á um 5 km leið frá Ártúnshöfða að Spöng.“

Hér fer ekkert á milli mála hjá Vegagerðinni. Borgarlínan í Grafarvogi verður í sérrými sem á eftir að hanna og byggja. Þá vaknar sú spurning: Verður Gullinbrú breikkuð og þriðja brúin byggð fyrir Borgarlínuna?
GULLINBRÚ BREIKKUÐ - NÝ BRÚ; ÞRIÐJA BRÚIN?
við íbúar í Grafarvogi getum svo sem spurt okkur áfram og velt því fyrir okkur hvort byggð verði sérstök brú, þriðja Gullinbrúin, þ.e. brúin breikkuð, fyrir Borgarlínuna fyrst hún verður í sérrými og ekki eigi að þrengja að núverandi umferð yfir brýrnar.
Það á að minnsta kosti eftir að hanna og byggja sérrými fyrir Borgarlínuna í Grafarvogi - og ekki bara að minnsta kosti; heldur mun það sérrými líka eitthvað kosta. Hversu mikið kemur í ljós seinna. Það á eftir að hanna, útfæra og byggja sérrými fyrir Borgarlínuna í Grafarvogi sem á að vera tilbúin 2036.
Það vakti líka athygli sl. föstudag að Betri samgöngur tóku ekki bara út sérrými heldur líka deilirými á umræddu skjali.
Það verður fróðlegt fyrir okkur Grafarvogsbúa að sjá hvernig þetta fer. Þriðja brúin með sérrými fyrir Borgarlínuna?
Þannig að það er kannski heil brú í þessu eftir allt saman? - JGH

Hér fer heldur ekkert á milli mála um Borgarlínuna almennt: „Hún mun að mestu aka í sérrými...“.

Það eru tvær brýr við Gullinbrú - verður sú þriðja byggð alveg sérstaklega fyrir Borgarlínuna sem mun hafa sérrými skv. Vegagerðinni?


