Lúpínan gerir sig gildandi víða í Grafarvogi. 81 ár síðan Hákon flutti hana til landsins!

2. júlí 2026

Alaskalúpínan gerir sig víða gildandi og víða eru miklar breiður af henni líkt og við Víkurveg, Keldnaholt og Hallsveg/Gagnveg en þar var forsíðumyndin með þessari frétt tekin.


Sitt sýnist hverjum um lúpínuna og hversu mjög hún breiðir úr sér þannig að úr verða miklar lúpínubreiður. En er hún of ágeng gagnvart öðrum gróðri? Það er skoðun margra.


Það var Hákon Bjarnason skógræktarstjóri sem kom með lúpínuna til landsins fyrir 81 ári þegar hann fór í fræsöfnunarferð til Alaska þar sem lúpína  óx „villt um allt“. 


Hákon taldi að plantan gæti orðið góð til landgræðslu hér á landi og sú varð raunin.


Og hún setur svo sannarlega mikinn svip á hverfið á þessum árstíma. - JGH

Er lúpínan of ágeng gagnvart öðrum gróðri eða hopar hún smám saman?

Við Hallsveg gegnt innkeyrslunni í kirkjugarðinn.

Lúpínubreiðan á hljóðmöninni milli Hallsvegar og Gagnvegar.