Græna byltingin. Það neðra og nyrðra við Egilshöll var tyrft í dag! Allt annar bragur!
2. júlí 2026
Núna er búð að tyrfa neðra hringtorgið við Egilshöll og ólíkt annar bragur og snyrtilegri en verið hefur.
Njólinn er horfinn og segja má að hann sé kominn „undir græna torfu“!
Grafarvogur.net hefur frá því snemma í fyrrasumar kallað eftir því að borgin klári þessi hringtorg en hafi þau ekki ár eftir ár í órækt.
Svo er að sjá hvernig framhaldið verður og hvort þau fái á sig sömu ásjónu og hin hefðbundnu fallegu hringtorg í hverfinu.
Græna hliðin upp. Það er byrjunin. - JGH

Loksins, loksins. Búið að snyrta bæðin hringtorgin við Egilshöll. Þetta er það neðra og nyrðra!


