Lúcý lék á alls oddi í Grafarvoginum í kvöld og stökk upp á axlir eigenda sinna
„Lúcý er mjög lífsglöð en áberandi tilfinninganæm,“ sögðu þau Natasia Keincke og Sigþór Sigþórósson um hundinn sinn hana Lúcý sem lék á alls oddi og sýndi listir sínar í „gönguferð sinni“ í kvöldsólinni í Grafarvogi í kvöld.
Þau Natasia og Sigþór búa í Hamrahverfinu og segja að Lucý fá um þrjár til fjórar gönguferðir á dag; kvöldgangan sé jafnan lengst og taki þá um 40 til 60 mínútur í hvert skipti.
Natasia er dönsk og hefur búið hér á landi í um eitt ár. Þau una hag sínum vel í Hamrahverfinu. „Hér er sérlega rólegt og friðsælt og hvergi betra að búa. Stutt út í náttúruna og hér eru fínar gönguleiðir.“
Lúcý er fjörug og hoppar og skoppar en er samt öguð. Hún er níu mánaða og hlýðír skipunum eigenda sinn svo eftir er tekið. Þegar þau gefa henni til dæmis viðeigandi merki stekkur hún upp á axlir þeirra svo ekkert sé.
Skemmtilegt.
Hún er portúgalskur vatnahundur og sú tegund er mjög vinsæl í Bandaríkjunum. „Við förum reglulega með hana til hundaþjálfara og það hefur skilað sér.“
- Stefnið þið að því að sýna hana í keppnum?
„Já, vonandi verður það einn daginn. Hún er mjög efnileg,“ segir Natasia stolt af sínum hundi.
Kæmi alls ekki á óvart að henni verði að ósk sinni og Lúcý sanki að sér verðlaunum.
Hún hefur allt til þess. - JGH

Sigþór Sigþórósson og Natasia Keincke með Lucý. Natasia þurfti ekki að lyfta henni í fangið. Smá skipun og Lucý stökk upp í fangið á henni.

Hér stekkur hún upp á axlir Sigþórs og heldur sig þar smá stund. Sirkustaktar.

Hér setur Sigþór hana niður. Spennan mikil.

Með litríkan bolta sem hún sleppir varla. „Boltinn róar hana,“ segja þau Sigþór og Natasia.

Fjörug er hún í fangi. Lúcý er portúgalskur vatnahundur en sú tegund er vinsæl í Bandaríkjunum.

Lúcý er tilfinninganæm en hlýðir eigendum sínum nánast í einu og öllu.


