Logafold er í einum þekktasta rósagarði heims í Jönköping í Svíþjóð

28. júní 2025

LOGAFOLD Í RÓSAGARÐI. Það kom skemmtilega á óvart þegar Grafarvogur.net var á ferð í einum þekktasta rósagarði heims, Rosenlunds herragarðinum í bænum Jönköping í Svíþjóð,  að innan um 550 mismunandi tegundir af rósum væri að finna fjórar gerðir rósa frá Íslandi, þeirra á meðal rósina LOGAFOLD.


Þetta er ekki aðeins einn frægasti rósagarður í Svíþjóð heldur í heiminum og fékk nýlega eftirsótt verðlaun Alþjóðasambands rósafélaga (WFRS).


Verðlaunin eru veitt á þriggja ára fresti og Rosenlunds herragarðurinn er fyrsti og eini rósagarðurinn í Svíþjóð sem hefur verið tilnefndur til verðlaunanna.


 Garðurinn er nú á lista með görðum eins og Rudolf W. van der Goot-rósagarðinum í Bandaríkjunum, Roseraie Princesse Grace de Monaco í Mónakó og Roseto Botanico Carla Fineschi á Ítalíu og Rosarium Sangerhausen í Þýskalandi. - JGH

Herragarðurinn var byggður 1780 af Mauritz Posse, sem var dómari í Göta-dómstólnum í Jönköping og konu hans, Gertrud Ehrenpreus, en hún var dóttir eiganda Huskvarna.

Í garðinum eru 550 mismunandi gerðir rósa.

Þetta er ekki aðeins einn frægasti rósagarður í Svíþjóð heldur í heiminum og fékk nýlega verðlaun Alþjóðasambands rósafélaga (WFRS).

Logafolds-rósin í þessum eina frægasta rósagarði heims í Jönköping.

Verðlaun Alþjóðasambands rósafélaga koma ekki á óvart.

Fjórar rósategundir frá Íslandi eru í garðinum. Drífa, Logafold, Katrín Viðar og Yndisrós.

Logafoldin blasir við.

Yndisrósin frá Íslandi.

Fallegar eru þær - hvílík litadýrð.

Horft niður garðinn í átt að Rosenlund-höfðingjasetrinu sem er byggt í gústavískum stíl og er ein frægasta eldri bygging sveitarfélagsins.

Öflugt veitingahús er í garðinum og er það vinsælt fyrir alls kyns veislur - eins og brúðkaupveislur.