Leikdagur í dag og vonandi verður orka í liðinu. Tristan er „Nobbari“ og sjónvarpsstjarna Orku

28. janúar 2026

SKEMMTILEGT INNLIT. Það er leikdagur í dag og vinnist leikurinn á móti Slóvenum í handbolta spilum við um verðlaunasæti á Evrópumótinu. Það er óhætt að segja að íslenska þjóðin sitji sem límd fyrir framan kassann og horfi á leikina.


Eitt þeirra fyrirtækja sem auglýsa í kringum mótið - og er með sérlegar frumlegar auglýsingar - er Orka við Stórhöfða sem er með sjálfan Grafarvoginn í bakgarðinum hjá sér.


Leikarinn í auglýsingum Orkunnar heitir Tristan Theodórsson, ættaður frá Norðfirði, („Nobbari“) og hann hefur svo sannarlega vakið athygli og slegið í gegn í auglýsingunum. Til dæmis fjallaði Morgunblaðið sérstaklega um hann skömmu fyrir sl. jól undir fyrirsögninni Óvænt stjarna í bílrúðuauglýsingum. Þegar kemur að handboltanum veifar hann íslenska fánanum og hrópar: Áfram Orka.


Grafarvogur.net leit við hjá Orkunni þegar Ísland lék við Sviss í gær í mjög svo spennuþrungnum leik sem endaði með jafntefli. Það var rólegt í afgreiðslunni, eðlilega, allir að horfa á leikinn; líka viðskiptavinirnir.


Friðrik Hreinsson verslunarstjóri var sallarólegur í afgreiðslunni þegar inn var komið - þótt spenna væri í lofti á skjánum í afgreiðslunni. „Við vonum bara að þeir hafi nægilega orku í leiknum og klári þetta. En þetta sýnist svolítið erfitt hjá okkar mönnum,“ segir hann brosandi.

Friðrik Hreinsson, verslunarstjóri Orku við Stórhöfðann. Auðvitað var stór sjónvarpsskjár í afgreiðslunni (raunar tveir) fyrir þá viðskiptavini sem líta inn meðan á leikjum stendur.

„Það er auðvitað mjög gaman að fylgjast með íslenska liðinu, strákunum okkar, og auðvitað stendur þjóðin á bak við þá í blíðu sem stríðu,“ bætir hann við.


Orka er þekkt fyrir að skipta um og selja bílrúður en fyrirtækið er einnig fyrirferðarmikið í sölu á lakki á bíla. Þeir eru margir brúsarnir sem blasa við á rekkunum í afgreiðslunni.


Friðrik hefur unnið um árabil hjá Orku og verið verslunarstjóri frá árinu 2003, eða frá því hann byrjaði hjá fyrirtækinu.


TRISTAN SLÆR Í GEGN


Um auglýsingarnar, segir hann að það hafi verið skemmtileg tilviljun hvernig Tristan kom inn í þessar auglýsingar. Hann hafi verið starfsmaður Orku um tíma en verið í leiklistinni og Kvikmyndaskólanum samhliða og sú hugmynd hafi kviknaði á covid-tímabilinu að hann byggi til auglýsingu sem færi á vef fyrirtækisins og youtube.


„Hann sló í gegn. Þar með var boltinn farinn að rúlla og ekki aftur snúið. Tristan hefur gert tugi auglýsinga fyrir okkur þótt nokkuð sé um liðið síðan hann hætti að vinna hjá fyrirtækinu, enda sumarstarfsmaður.“


Það eru þrjátíu sekúndur eftir af leiknum við Sviss og allt á suðupunkti.


„Er þetta ekki tapað?,“ segir viðskiptavinur sem lítur óvænt inn. „Nei, nei, við erum manni yfir, eigum boltann - og getum unnið,“ stynjum við Friðrik samhljóma upp við blessaðan kúnnann - sem auðvitað fór beint að skjánum til að horfa á lokasóknina. Sú sókn fór eins og hún fór.

Friðrik Hreinsson verslunarstjóri stillir sér hér upp við hlið stjörnu fyrirtækisins í bílarúðaauglýsingum Orkunnar - Tristani Theodórssyni.

Friðrik segir að Orka selji allt fyrir útlit bílsins; þó fyrst og fremst bílrúður og lakk.


„Við seljum og skiptum um rúður - og eigum allar tegundir bílrúða, sama hvar þær eru í bílnum. En við erum einnig mjög stórir í lakkinu og seljum allt sem viðkemur sprautun og réttingum og þar eru sprautu- og réttingarverkstæðin eðilega okkar stærstu viðskptavinir. Nú, svo er það maðurinn á götunni, einstaklingar sem koma hingað til að versla og það er mjög drjúgt.“


Um 25 starfsmenn vinna hjá Orku og auðvitað er mikill áhugi á handbolta hjá fyrirtækinu -  eins og hjá þjóðinni.


- Heldurðu að við vinnum Slóvena?


„Verðum við ekki að vona það. Það væri frábær árangur að komast í undaúrslitin. Þetta eru orkumiklir strákar og þeir hljóta að taka þetta,“ segir Friðrik sallarólegur sem fyrr. - JGH

Auglýsingar Orku vekja svo sannarlega athygli og það er Tristan Theodórsson, fyrrum starfsmaður fyrirtækisins, sem leikur þar aðalhlutverkið,

Leik lokið á móti Sviss en trúin á undanúrslitin þó ekki að baki. Þeir félagar í afgreiðslunni hjá Orku; Guðmundur Finnbjarnason og Friðrik Hreinsson verslunarstjóri.