Laukar líta upp og plöntur taka við sér - vor í lofti og lífið fær annan brag

20. apríl 2026

Það er svo sannarlega vor í lofti. Meðfylgjandi myndir voru teknar í góðviðrinu í Hamrahverfinu í morgun og óhætt að segja að vorið minni hressilega á sig þessa dagana. 


Fyrir um tíu dögum var fremur kalt og snjór á höfuðborgarsvæðinu að morgni föstudagsins 10. apríl. En eins og hendi væri veifað tók að hlýna úti þá helgi og í byrjun síðustu viku fóru borgarbúar að ræða um að vorið væri að nálgast. 


Sumardagurinn fyrsti verður nk. fimmtudag, 23. apríl og spáin er góð fyrir þann dag; stefnir í alvöru sumardag.
- JGH 

Svolítið einmana. Til auglitis við skínandi sól.

Gægist fram í trjárunnanum sem á svolítið í land.

Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur.

Laukar líta upp.

Byrjað að bruma.

Vor í lofti og vonandi ekkert hret úr þessu.