Ekki er allt sem sýnist! Við Austurver sl. laugardag

18. apríl 2026

Þetta leit ekki vel út þegar ekið var inn á bílastæðið fyrir framan Austurver sl. laugardag. Og ég spurði mig strax að því hvernig gæti staðið á því að umferð væri leyfð inn á planið við þessar kringumstæður?


En ekki er allt sem sýnist!


Það var verið að taka upp kvikmynd þar sem m.a. sprengja springur í gamla Landsvirkjunarhúsinu. Þarna var sem sagt lögregla, slökkvilið og tökulið. - JGH

Lögregla, slökkvilið og tökulið.

„Sprengja“ í gamla Landsvirkjunarhúsinu.