Engin Heiða!
ENGIN HEIÐA. Samfylkingin í Reykjavík dreifði nýjum bæklingi - fjórblöðungi - í Grafarvogi í kvöld og það fyrsta sem blasir við er að Heiðu Björg Hilmisdóttur, borgarstjóra Samfylkingarinnar í Reykjavík, er hvergi að finna í bæklingnum.
Hún skipar engu að síður 2. sæti listans í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum og hefur verið foyrstukona flokksins í borginni og sveitarstjórnarmálum um langt skeið.
Þrjár myndir eru í bæklingnum og er Pétur Marteinsson, efsti maður listans, á þeim öllum.
Á forsíðunni er hann með Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur sem skipar 3. sæti listans. Í opnunni stendur Regína Ásvaldsdóttir með honum en hún skipar 7. sæti listans. Á baksíðunni er svo mynd af Pétri einum. - JGH

Í miðopnu bæklingsins er mynd af Pétri með Regína Ásvaldsdóttir sem gegndi starfi bæjarstjóra í Mosfellsbæ síðasta kjörtímabil og skipar 7. sæti listans.

Á forsíðunni er Pétur með með Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur sem skipar 3. sæti listans.


