Kvöldroðinn kætir og sá franski hafði rétt fyrir sér!
7. september 2026
Kvöldroðinn kætir og það getur svo sannarlega teygst á saklausri verslunarferð upp í Spöng í ljósaskiptunum. Þannig var það í kvöld.
Kvöldroðinn kætir og kallar á mann.
Á skilti á hæðinni yfir Gufunesi - við Hallsteinsgarð - segir að franskur heimshornaflakkari sem rataði til landsins fyrr á öldum og skrifaði ferðahandbók eftir komu sína hafi lýst fegurð fjallahringsins okkar við Sundin blá með fegurstu stöðum jarðar.
Það eru engar ýkjur. - JGH

Akrafjallið umvafið og baðað brosandi kvöldroða.

Tignarlegur tjaldar hann sínu fegursta.
Fagur er fjallahringur.

