Kostnaðurinn við leikskólann Brákarborg jafngildir byggingu 10 til 12 einbýlishúsa

10. júní 2025

KOSTNAÐARKLÚÐUR! Nokkrar umræður hafa orðið að undanförnu um kostnaðinn við leikskólann Brákarborg en Snorri Másson alþingismaður hefur birt áhugavert myndband þar sem fram kemur að kostnaður Reykjavíkurborgar vegna þessa ævintýris er kominn í 2,1 milljarð króna - en það jafngildir kostnaði við að byggja 10 til 12 stór og glæsileg einbýlishús.


Í síðustu viku birti mbl.is frétt undir yfirskriftinni Skýrsla um Brákarborg málar dökka mynd af verkinu. Sjá frétt hér.  Um er að ræða skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar. Skýrsluna í heild sinni má lesa hér. 


Leikskólinn hefur verið lokaður í bráum ár, eða frá því síðsumars í fyrra, þar sem fara þurfti í viðbótarviðgerðir í ljósi þess að torfþakið fræga og burðarvirki voru að gefa sig.

Snorri Másson þingmaður hefur gert mjög athyglisvert myndband um kostnaðinn  við leikskólann Brákarborg. (Snorri í stjórnarandstöðu á þingi en tölurnar tala engu að síður sínu máli.)

Hér má svo sjá hið áhugaverða myndband Snorra Mássonar af þessu mikla kostnaðarklúðri sem er frekar í ætt við yfirgengilegan fáránleika.


Málefni og fjármál borgarinnar koma okkur Reykvíkingum svo sannarlega við - og er ekki bundið við þau hverfi sem við búum í. 


(Meðfylgjandi opnunarmynd er eftir Árna Sæberg ljósmyndara Morgublaðsins) - JGH