Fánasafnarinn í Grafarvogi vekur athygli í kvöldfréttum RÚV - á 215 fána

9. júní 2025

FÁNASAFNARINN. Ólafur Sverrisson Grafarvogsbúi og íbúi í Hamrahverfinu hefur í nokkur ár vakið athygli fyrir að flagga hinum fjölbreyttustu fánum og oft á tíðum hefur fólk spurt sig sem svo hvaða fáni skyldi þetta nú vera. Hann var í skemmtilegu spjalli í fréttum RÚV fyrr í kvöld. Sjá hér.


Lesendur Grafarvogs.net hafa ugglaust tekið eftir að vefurinn birtir annað slagið myndir af fánum enda Ólafur nágranni undirritaðs í hverfinu.


Fram kom í viðtalinu við RÚV að Ólafur á 215 fána og hyggst halda ótrauður áfram við að safna fánum og flagga - og stefnir að því að eignast fána allra ríkja heims. - JGH