Nemendur í Borgó fjölmenna í kirkjuna í hádeginu á morgun. Tónaflóð Íslands, Þýskalands og Lichtenstein
Það verða hressilegir tónleikar í Grafarvogskirkju í hádeginu á morgun þegar kórar frá Íslandi (Borgarholtsskóla), Þýskalandi og Liechtenstein hefja upp raust sína og taka lagið.
Þetta verður mikið tónflóð - svo sannarlega „sound of music“!
Ætla verður að nemendur úr Borgarholtsskóla muni fjölmenna í kirkjuna í hádeginu og hlýða á kórana taka lagið.
Auk kórs Borgarholtsskóla munu kórar nemenda frá Nordhorn Gymnasium, Þýskalandi, og Gymnasium Vaduz, Liechtenstein, stíga á stokk í kirkjunni og taka lagið.

Kórar skólanna hafa æft saman að undanförnu fyrir tónleikana í kirkjunni á morgun.
Tónleikarnir hefjast klukkan 12:00 og verða sem sem fyrrr segir í kirkjunni okkar fallegu í Grafarvogi.
Nemendur hafa æft saman lög sem þau syngja á tónleikunum ásamt því að kórarnir syngja sjálfir lög frá heimlandi sínu.
Verkefnið er hluti af erlendu samstarfi í Borgarholtsskóla og er styrkt af Erasmus+.
Gaman að svona alþjóðlegu samstarfi skólanna.
Áfram Borgó. - JGH

Frá samæfingu kóranna. Tónleikarnir hefjast klukkan 12 í hádeginu á morgun.


