Heita vatnið tekið af öllum íbúðum í Grafarvogi á miðnætti annað kvöld. Gott að loka gluggum

28. september 2026

Heita vatnið verður tekið af öllum íbúðum í Grafarvogi á miðnætti annað kvöld, þriðjudagskvöld, og verður heitavatnslaust fram að hádegi á miðvikudag.


Veitur hvetja íbúa til að loka gluggum til að minnka hitatapið.


Það má sjálfsagt bæta því við að gott sé að eiga góða sæng þegar gengið verður til náða annað kvöld því húskuldi er fremur hvimleiður.


Fram kemur í tilkynningu frá Veitum að verið sé að endurnýja búnað og því sé nauðsynlegt að taka heita vatnið af á meðan.


Þá segir ennfremur: „Mikilvægt er að hafa skrúfað fyrir krana innanhúss til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar heita vatnið kemur aftur á. Húseigendum er bent á að huga að sínum innanhússkerfum, til dæmis gólfhitakerfum.


Þegar vatninu er hleypt á lagnir að nýju er það gert hægt og rólega. Það geta komið upp lekar í viðamiklu dreifikerfi eftir lokun og þá er mikilvægt að láta okkur vita strax.“


Allar nánari upplýsingar frá Veitum er að finna hér í þessum tengli. - JGH

Heita vatnið verður tekið af öllum íbúðum í Grafarvogi á miðnætti annað kvöld, þriðjudagskvöld, og verður heitavatnslaust fram að hádegi á miðvikudag.