Skemmtilegt myndband; haustlitaveisla að norðan við undirleik meistara Bowie
1. október 2026
Það er ýmislegt sem maður rekst á þegar vafrað er um á netinu.
Magnús Magnússon setti inn meðfylgjandi haustlitaveislu á Facebook en veislan sú er ættuð að norðan; frá Akureyri.
Sérlega vel gert myndband hjá Magnúsi og ekki er nú verra að hafa söng meistara Bowie sem undirleik.
Gróðurinn fer í „litríkari spariföt“ þegar hausta tekur.
Allar árstíðir hafa sinn sjarma.
Hér má sjá myndbandið góða með því að smella í haustlitaveislu Magnúsar. - JGH

Fallegur bær Akureyri og kirkjan gnæfir yfir bæinn tignarleg. (Skjámynd frá Magnúsi).

Vaðlaheiðin blasir við og aðeins farin að grána. (Skjámynd frá Magnúsi).


