Kaup Brims á Lýsi - meira en væn skeið af lýsi
HLUTHAFASPJALL ritstjóranna. Ein eftirtektaverðustu fyrirtækjakaup ársins áttu sér stað þegar Brim hf. keypti allt hlutafé Lýsis hf. fyrir samtals 30 milljarða króna.
Við félagarnir Sigurður Már Jónsson förum yfir þessi kaup í nýjasta þætti Hluthafaspjalls ritstjóranna, hlaðvarpsþætti okkar á Brotkast.is
Við förum yfir kaupin, aðdragandann, sögu félagsins og hvaða áhrif hækkun veiðileyfagjalda hefur á söluna.
Kaupverðið mun skiptast jafnt í reiðufé og hlutabréf í Brim hf. Frá heildarverðmæti hlutafjár dragast vaxtaberandi skuldir Lýsis hf. sem námu rúmum 5,2 milljörðum króna þann 30. júní 2025.
Fréttir voru af því að um skeið hefðu menn skoðað möguleika á að skrá Lýsi í Kauphöllina en að endingu lagði Brim fram tilboð sem ekki var hafnað.
Erlendir aðilar höfðu áhuga en það er fagnaðarefni að félagið verði áfram í íslenskri eigu. Um leið styrkist hluthafahópur Brims og kaupin styrkja hráefnisstöðu Lýsis og færa Brim lengra upp virðiskeðju sjávarafurða. - JGH
Hér má sjá klippu af spjalli okkar Sigurðar Más Jónssonar um kaup Brims á Lýsi.


