JYSK-stórhýsið að taka á sig mynd. Svæði verslana við Korputún á við alla Skeifuna
Stórhýsi JYSK á Korputúni, rétt við Vesturlandsvegin, er svo sannarlega að taka á sig mynd. Mörgum hefur fundist þetta stórhýsi líkjast Græna gímaldinu margumtalaða við Álfabakka óþægilega mikið.
Þetta stórhúsi verður langstærsta byggingin á hinu stóra verslunarsvæði sem verið er að reisa á Korputúni en stærð þess er á við alla Skeifuna. Sjá betur hér.
Grafarvogsbúar hafa eðilega fylgst náið með uppbyggingu þessa stóra verslunarsvæðis þar sem gera verður ráð fyrir að umferð um hverfið í Grafarvogi muni aukast talsvert frá því sem núna er.
JYSK og Bónus voru fyrstu fyrirtækin til að tryggja sér húsnæði í þessum mikla verslunarkjarna sem Reitir hafa hannað og eru að reisa.
Þá hefur fyrirtækið Drangar sem rekur m.a. Samkaup, Orkuna, Lyfjaval og Löður tryggt sér húsnæði á svæðinu.
Atvinnukjarni á stærð við Skeifuna; það er talsvert. - JGH

Korputún verður atvinnukjarni á stærð við Skeifuna. Margir Grafarvogsbúar hafa spurt sig hvort umferð um hverfið eigi eftir að stóraukast þegar hjólin verða farin að snúast af alvöru á svæðinu.

Glæsileg og mikil bygging.

Hér er verið að vinna við að gera bláa JYSK-merkið klárt.

Þau eru mörg handtökin við svona stórbyggingar.

Bláa JYSK-merkið fullgert og áberandi.

