Gasið rokselst hjá Olís! Hún Angela stendur vaktina í Grafarvogi um helgina þegar allir eru á ferð og flugi

1. ágúst 2026

Sól og sumar - og þar að auki verslunarmannahelgi þegar allir eru á ferð og flugi. En nei, ekki allir. Einhverjir þurfa að standa vaktina þessa miklu frí- og ferðahelgi.


Og það kom að því hjá okkar manni í gær að kúturinn tæmdist, það er að segja gaskúturinn. Snögg og lipur bjargaði hún málum fyrir gamla.


Heitir Angela Routly og er vaktstjóri á Olís í Grafarvogi þessa helgina og hefur í nógu að snúast.


„Það er samt aðeins að róast hjá okkur núna enda margir út úr bænum,“ segir hún. „Það er annars búið að vera bjálað að gera  í sumar. Svo mikið að það þurfti að bæta starfsmönnum við um tíma.“


En hvað með ísinn sem þið byrjuðuð að selja aftur í sumar? Hann er í stærri kantinum í brauðforminu hérna við dyrnar?


Ísinn hefur hefur hitt í mark hjá okkur. Íbúar hér í Grafarvogi kunna greinilega að meta hann.“


Með því var hún rokin inn enda komin smá biðröð í afgreiðslunni.


Sumar og sól - og hann bráðnar ekki svo glatt þessi í brauðforminu við dyrnar, hugsaði ég með mér. - JGH

Angela Routly stendur vaktina í Grafarvogi þessa miklu frí- og ferðahelgi. Hann bráðnar ekki svo glatt þessi í brauðforminu við dyrnar.

Gamli gaslaus en því var snarlega bjargað.