Hrekkjavakan varð enn áhrifameiri undir dansi og söng norðurljósa
Það er óhætt að segja að hrekkjavakan - sem hefur fest sig í sessi hér á landi - hafi fengið góðan liðsauka í kvöld þegar norðurljósin skörtuðu sínu fegursta og dönsuðu og skinu yfir kvöldhimninum sem aldrei fyrr.
Þessar myndar voru teknar í Grafarvogi í kvöld af Ástu Þorleifsdóttur, jarðfræðingi og íbúa í Grafarvogi, og sýna þær vel þessa mögnuð fegurð á himnum þar sem litskrúðugir borðarnir liðuðust um í fallegum bylgjum
Þetta náttúrufyrirbæri verður til þegar hlaðnar agnir frá sólinni rekast á lofthjúp jarðar.
Ljósasýning og dans af bestu gerð. - JGH

Norðurljósin í Grafarvogi á hrekkjavökukvöldi í kvöld. Ljósasýning og dans af bestu gerð. Myndir: Ásta Þorleifsdóttir.


