Jón Ásgeir er svo sannarlega mættur til leiks!

9. júní 2025
HLUTHAFASPJALLIÐ. VIÐSKIPTI. Jón Ásgeir Jóhannesson er svo sannarlega mættur aftur til leiks á matvörumarkaðnum með kaupum Orkunnar, dótturfélags Skeljar, á 96% hlut í Samkaupum. 

Þeir Jón G. og Sigurður Már fara yfir nýjustu vendingarnar á matvörumarkaðnum í nýjasta hlaðvarpsþætti sínum, Hluthafaspjallinu, á Brotkast.is. Raunar hafa þeir félaga fylgst náið með þreifingum Skeljar á Samkaupum frá því í haust og spáðu því þá þegar að Samkaup yrðu leið Jóns Ásgeirs inn á matvörumarkaðinn.

Hann hefur núna teiknað upp þriðja aflið á markaðunum sem keppa mun við Haga og Festi af fullri hörku. Núna eru Orkan, Nettó, Prís, Kjörbúðirnar, Krambúðirnar, 10-11, Heimkaup og Extra öll komin undir regnhlíf Orkunnar. 

Jón Ásgeir er stjórnarformaður Skeljar og hefur engan áhuga á að stíga inn á matvörumarkaðinn nema láta til sín taka! Fróðlegt verður að sjá hvort Prís eða Nettó sé á leið í Grafarvoginn - og þá ekki síður hvernig.

Núna eru Hagar með sterka stöðu innan Grafarvogs með Bónus og Hagkaup í Spönginni - en þess utan mun Bónus opna mjög stóra verslun í verslunarkjarnanum á Korputúni og reka hana ásamt versluninni í Spönginni.

Jón Ásgeir er auðvitað öllum hnútum kunnungur þegar kemur að matvörumarkaðnum en hann stofnaði Bónus á sínum tíma ásamt föður sínum, Jóhannesi Jónssyni.  - JGH