Hliðarverkanir af samruna banka - allt í frost í eitt ár. Vill Kvika í dansinn?
9. júní 2025
HLUTHAFASPJALL. VIÐSKIPTI.
Snorri Jakobsson, eigandi Jakobsson Capital, segir í nýjasta þætti Hluthafaspjallsins hjá þeim Jóni G. og Sigurði Má
að sameining Kviku við annan hvorn stóru bankanna, Íslandsbanka eða Arion banka, geti tekið allt að eitt ár og það sem meira er; þeir bankar sem ákveða að sameinast gætu verið í „eins konar frysti“ á meðan Samkeppniseftirlitið er með mál þeirra til skoðunar – sem gæti jú tekið eitt ár, að hans mati.

Sigurður Már Jónsson, Jón G. Hauksson og Snorri Jakobsson, eigandi Jakobsson Capital.
Snorri telur að hluthafar Kviku líti frekar til Íslandsbanka til sameiningar þar sem hann býður 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum.
Snorri veltir því hins vegar fyrir sér í hlaðvarpinu hvort hluthafar Kviku séu yfir höfuð til í þennan dans þar sem ljóst sé að „þetta mun setja allt í frystinn hjá báðum fyrirtækjum,“ meðan samruninn er til skoðunar.
Fróðlegt spjall við Snorra sem sjá má brot úr í meðfylgjandi klippu.
- JGH