Þjóðhátíðardagur Svía í dag - og flaggað í Grafarvogi
FLAGGAÐ FYRIR SVÍUM! Þjóðhátíðardagur Svía er í dag, 6. júní, og að sjálfsögðu var Svíum sýndur sá heiður í Grafarvogi að draga þann sænska að húni og flagga hressilega fyrir þeim í tilefni dagsins.
Hefð Svía fyrir því að halda upp á þennan dag hófst árið 1916 á Ólympíuleikvanginum í Stokkhólmi til heiðurs kjöri Gústafs Vasa konungs 6. júní 1523 og samþykkt stjórnarskránna frá 1809 og 1974.
Meðal nýrri hefða sem hafa komið fram síðan þjóðhátíðardagurinn varð rauður dagur í Svíþjóð er boð frá konungi til almennings um að heimsækja stóran hluta Stokkhólmshallarinnar allan daginn án venjulegs aðgangseyris.
En hvað um það - sá danski í gær og sænski í dag. - JGH
Sá sænski blakti hressilega í Grafarvoginum.