Getraun dagsins - hvaða fáni er þetta sem blasir við í Grafarvogi?

7. júní 2025
FÁNAGETRAUN. Þessi fáni blaktir við hún í Grafarvogi og stóra spurningin er auðvitað hvaða fáni þetta sé? Hann minnir að sjálfsögðu á þann danska en krossinn er gulur en ekki hvítur.

Svo?

Frá tíma Haraldar blátannar, konungs Danmerkur, (en hann lést 986) var Skánn, syðsti hluti Svíþjóðar, hluti af Danmörku og alveg til ársins 1658 (Hróarskeldusáttmálinn) og reyndist Skánn mikilvægur hluti danska ríkisins á 15. og 16. öld. 

Danir misstu yfirráðin 1658 en náðu þeim aftur í stuttan tíma, 1676–1679, (Skánska stríðið) og svo aftur 1711 en Skánn varð svo formlega hluti af Svíþjóð árið 1720. 

Þannig að - þetta var fáni Dana á Skáni þegar þeir réðu þar ríkjum á sínum tíma. - JGH

Konungsríki Haraldar blátannar (rautt) og skattlönd hans og bandalagsríki (gult).