Bókasafnið blómstrar! Lesið með mömmu á gólfinu á bókasafninu

6. júní 2025

BÓKASAFNIÐ BLÓMSTRAR. Þegar Grafarvogur.net átti leið um bókasafnið í Spönginni einn eftirmiðdaginn í vikunni var þar margt um manninn og mikið um að vera í öllum hornum. Bókasafnið blómstar.


Þarna hittum við fyrir mæðgur sem sátu saman á gólfinu og lásu saman skemmtilega bók. Þetta voru þær Hólmfríður Frostadóttir og dóttirin Esja Geirdal Hólmfríðardóttir.


„Já, við komum hingað talsvert og lesum saman, sérstaklega yfir veturinn. Núna erum við að lesa bókina Mamma sandkaka,“ segir Hólmfríður. „Þetta er spennandi saga sem hún hefur gaman af.“


- En hvers vegna á gólfinu fyrir framan lítinn kofa?


 „Hún valdi þennan stað, vildi endilega að við settumst hérna til að lesa saman.“


Bókin er eftir Lóu Hjálmtýsdóttur rithöfund.


Eitthvað  mun vera um það að börn hittist eftir leikskólann á bókasafninu til að fræðast og lesa saman.  - JGH