Jæja, hvernig væri nú að brýna blöðin í sláttuvélinni og slá þetta svæði fyrir 17. júní?

9. júní 2026

Við á Grafarvogur.net vöktum athygli á þvi í fyrrasumar að komin væri einhver ný tískulína sem fælist í að leyfa gróðrinum að vaxa villt. Jú, þetta var víst mótuð stefna sem sumum fannst stórkostleg en öðrum ekki.


Og ekki nóg með það, það virtist engin regla á þessari óreglulegu villtu stefnu því sums staðar voru grasmanir slegnar af vandvirkni en annars staðar ekki.


Það sama virðist vera uppi á teningnum núna.


En er ekki við hæfi að endurskoða þessa villtu stefnu vinstrimeirihlutans núna þegar nýr meirihluti er kominn til valda og fylgir STRAX-línunni; þ.e. að vinda sér strax í verkin?


Það er af nógu að taka í Grafarvogi. Til dæmis mætti byrja á þessari grasmön sem er orðin að illa hirtum móa við eina fjölförnustu götu hverfisins, Strandveginn, þar sem njólarnir eru ekki til yndisauka.


Hvers vegna ekki að slá til - og það fyrir þjóðhátíðardaginn? - JGH

Hvernig væri nú að brýna blöðin í sláttuvélinni og slá til fyrir 17. júní? Hvar er STRAX-línan?