Björg, formaður Liverpool klúbbsins, hataði fótbolta en kolféll fyrir Anfield og Liverpool
Björg Arna Elfarsdóttir er formaður Liverpool-klúbbsins á Íslandi og fyrsta konan til að gegna því embætti. Hún hefur farið um tuttugu sinnum á heimavöll Liverpool; Anfield og er alltaf jafn spennt þegar hún gengur inn á leikvanginn; musterið mikla. Hún er á sínu þriðja ári sem formaður Liverpool-klúbbsins á Íslandi og það er í nógu að snúast hjá klúbbnum sem stofnaður var 1994.
Þegar Grafarvogur.net var á ferð á Anfield í apríl var hún fararstjóri í ferðinni og stóð sig vel; var öllum hnútum kunnug í Bítlaborginni.
Þetta er skemmtilega saga. Hún spilaði körfubolta en segist hafa allt að því hatað fótbolta en sló til þegar henni var boðið í fótboltaferð á Anfield. Hún kolféll fyrir Liverpool og var á dögunum endurkjörin í kosningu formaður Liverpool-klúbbsins á Íslandi.
Hún er 47 ára og alin upp í körftuboltabænum Stykkishólmi þar sem hún spilaði körfubolta frá 10 ára aldri. Hún segist hafa reynt fyrir sér í fótbolta eitt sumarið en lagði takkaskóna á hilluna í lok sumars.
„Ég var svo léleg,“ segir hún og hlær.

Björg Arna Elfarsdóttir er formaður Liverpool-klúbbsins á Íslandi og fyrsta konan til að gegna því embætti. Hún var endurkjörin formaður klúbbsins á dögunum.
LÍST VEL Á NÝJA STJÓRANN
– Hvernig líst þér á nýja stjórann; Spánverjann Andoni Iraola?
„Mér líst bara nokkuð vel á Iraola. Ég er búin að horfa held ég á öll viðtöl við hann eftir að hann var kynntur til leiks og hef góða tilfinningu fyrir honum. Hann náði frábærum árangri með Bournemouth þar sem hann kom liðinu í Evrópukeppni og bjó til skemmtilegt lið. Ég hlakka til að horfa á liðið okkar spila skemmtilegan og sókndjarfan bolta aftur.“

Nýi stjórinn, Spánverjinn Andoni Iraola spilar sókndjarfan fótbolta.
KJÖRIN FORMAÐUR FYRIR TVEIMUR ÁRUM
Björg Arna tók við formennskunni fyrir tveimur árum og var endurkjörin í kosningu á síðasta aðalfundi félagsins sem var haldinn 20. maí sl. „Ég fæ því þann heiður að vera formaður næstu tvö árin.“
– Hvað er það sem heillar þig mest við að fara á leiki á Anfield?
„Það er svo margt sem hægt væri að nefna; gleðin, andrúmsloftið, söngurinn, ákafinn og stuðningsmennirnir sem eru með þeim bestu sem þekkist. En fyrir mér er það andrúmsloftið. Að vera fyrir framan leikvanginn fyrir leik og sjá rauða hafið streyma að, klappa fyrir rútunum þegar þær aka með leikmennina á völlinn, söngvarnir, gleðin og svo er fátt sem toppar það að vera inni á leikvanginum þegar You´ll never walk alone er sungið hástöfum. Ég fæ kusk í augun í hvert sinn sem lagið er sungið.“
LIVERPOOL ER MJÖG HEILLANDI BORG
– En hvað er það sem heillar þig mest við Bítlaborgina?
„Sagan og menningin myndi ég segja. Þetta var verkamannaborg í grunninn og rosaleg barátta verkafólksins hefur gert borgina að því sem hún er í dag, að mínu mati. Öll þessi saga, tónlistin og andrúmsloftið í borginni heillar mig mjög mikið. Fyrir mér er þetta svona borg sem er með allt. Hún er nútímaleg og snyrtileg með mjög fjölbreytta afþreyingu og marga frábæra veitingastaði. Hin glæsta saga Bítlanna fer auðvitað ekki fram hjá neinum enda margir sem nýta sér ferð á Anfield með því að fara í sérstaka Bítlatúra sem boðið er upp á. Þá vil ég nefna Albert Dock-hafnarsvæðið sem einstaklega skemmtilegt, með marga veitingastaði og tengist vel við miðbæinn.“
STEVEN GERRARD UPPÁHALDSLEIKMAÐURINN
Björg andvarpar og segir „úffff“ þegar hún er spurð um uppáhaldsleikmann hennar með Liverpool frá upphafi. „Þetta er erfið spurning og mjög erfitt að gera upp á milli,“ segir hún.
„Steven Gerrard
er kannski augljósasta svarið en hann var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann var fyrsta nafnið sem ég setti aftan á treyju hjá mér. Það hvernig hann las leikinn, leiðbeindi leikmönnum innan sem utan vallar og hvernig hann náði leikmönnum með sér í baráttuna á erfiðum tímum fannst mér mjög aðdáunarvert. Og eigum við eitthvað að ræða sendingarnar hans?! Bobby Firmino var sömuleiðis í miklu uppáhaldi hjá mér. Geggjaður leikmaður sem hætti aldrei að berjast. Mér fannst hann svolítið líkur Gerrard sem persóna. Já, það eru margir kallaðir en þessir tveir koma einhvern veginn fyrst upp í hugann.“

Anfield. „Það er svo margt sem hægt væri að nefna við Anfield; gleðin, andrúmsloftið, söngurinn, ákafinn og stuðningsmennirnir sem eru með þeim bestu sem þekkist. En fyrir mér er það andrúmsloftið,“ segir Björg.
HATAÐI FÓTBOLTA EN KOLFÉLL FYRIR LIVERPOOL
En hvað kom til að hún fór að halda með Liverpool? Hún hlær þegar hún fær þessa spurningu og segir að það sé svolítið skemmtileg saga á bak við það. „Fyrrum eiginmaður minn var mikill Liverpool-aðdáandi og horfði á flesta leiki. Ég aftur á móti hataði fótbolta en horfði á körfubolta eins og enginn væri morgundagurinn. Svo eitt sinn spurði hann mig hvort ég vildi koma með honum út til Englands á leik. Ég var nú frekar treg til, en hugsaði að ég gæti þá bara farið út í hálfleik og gert eitthvað skemmtilegra. Það þarf ekkert að lengja svarið neitt því ég gersamlega kolféll fyrir Liverpool og hef verið harður stuðningsmaður síðan.“
EKKI BARA FÓTBOLTI - VIÐ STYRKJUM GÓÐ MÁLEFNI
Björg Arna segir að hún sé óendanlega stolt af því að vera félagsmaður í Liverpool-klúbbnum á Íslandi því hluti félagsgjalda fari í sérstakan styrktarsjóð félagsins sem styrkt hafi góð málefni í gegnum tíðina um fjárhæðir sem munar um.
„Undanfarin þrjú ár hafa góðgerðarfélög fengið eina milljón króna í styrk og núna síðustu tvö árin höfum við spurt félagsmenn í skoðanakönnun á FB-síðu félagsins hvaða góðgerðarfélög við eigum að styrkja. Í fyrra voru það Breið Bros sem fengu styrkinn og í ár var það Gló-Reykjardalur sem fékk styrk frá klúbbnum upp á eina milljón króna. Það var yndislegt að koma í Reykjardalinn og afhenda styrkinn.
Þar var tekið á móti okkur með Liverpool-söngvum spilaða í hátalara, búið að búa til skilti og margir í Liverpool-treyjum. Þetta var alveg einstök stund og gerði stoltið enn meira, ef það er hægt, að vera virkur meðlimur í klúbbnum okkar hérna á Íslandi.“

Hægt er að fá nöfn leikamanna stimplaða á búninga í Liverpool-verslun í miðborginni. „Steven Gerrard var fyrsta nafnið sem ég setti aftan á treyju hjá mér.“
CARRAGER, RUSH, HESKEY, KUIT, RIISE OG FLEIRI
Margir þekktir fyrrum leikmenn Liverpool hafa komið til landsins í boði Liverpool-klúbbsins, goðsagnir hjá félaginu, og verið heiðursgestir á árshátíð klúbbsins.
„Þetta er hefð sem hefur verið í mjög mörg ár og einn af hápunktum tímabilsins hérna heima. Hingað hafa komið til dæmis þeir Jamie Carragher, Ian Rush, Mcmanaman, Kuit, John Arne Riise kom í fyrra og Emile Heskey kom á þessu ári og þetta er alls ekki tæmandi listi. Þetta er hefð sem mikill áhugi er á að halda áfram og hafa þeir sem hafa komið hingað haft á orði að móttökurnar hérna séu einstakar.“
GOÐSAGNIR Á HESTBAK OG FARA GULLNA HRINGINN
Og Björg bætir við: „Yfirleitt þegar þeir mæta í svona samkomur þá fara þeir af flugvellinum á hótelið, fara á viðburðinn, aftur á hótelið og svo beint uppá völl. Klúbburinn hefur í samstarfi við frábæra aðila leyft gestunum okkar að skoða Ísland aðeins. Fara gullna hringinn og ef það er einhver sérstakur áhugi á að gera eitthvað annað, td. fara á hestbak, fjórhjólaferð eða annað þá verðum við við því. Þetta er frábær kynning fyrir landið okkar og frábæra klúbbinn okkar hérna heima. Nú er bara að bíða og sjá hver heimsækir okkur næst,“ segir Björg Arna Elfarsdóttir að lokum. - JGH

Liverpool er sjálf Bítlaborgin.

Leikur að nálgast og fólk streymir að.

Blómahaf fyrir utan Anfield til minningar um þá Jota-bræður.

Ian Rush, ein frægasta nían í sögu Liverpool málaður á gafli á húsi við Anfield Road.

Nokkrar mínútur í leik og allt að verað klárt.

Þessi skrautlegi skyndibitavagn er á Albert Dock-hafnarsvæðinu.

Björg Arna segir að Liverpool-klúbburinn sé meira en fótbolti, hann styrkir líka góð málefni. „Í fyrra voru það Breið Bros sem fengu styrkinn og í ár var það Gló-Reykjardalur sem fékk styrk frá klúbbnum upp á eina milljón króna.“


