Gott mál - tókst að losa háhyrninginn síðdegis

11. júní 2025

HÁHYRNINGURINN!  Það tókst að losa háhyrninginn síðdegis í dag og er það mikil gleðifrétt hvernig til tókst.


Það vakti auðvitað athygli allra landsmanna þegar sagt var frá því að háhyrningur hefði tekið stímið og synt rakleitt í land við Gorvík fyrir neðan Staðar- og Víkurhverfið í Grafarvogi - skammt frá golfvellinum við Korpu; þeim hluta hans sem kallast Sjórinn.


Það er einstakt að Grafarvogsbúinn Hrafnhildur Björnsdóttir skyldi ná hinu ótrúlega myndbandi þegar háhyrningurinn synti rakleitt í land - svo að segja í beinni útsendingu. Sjá meðfylgjandi vídeó.


Hér   má líka sjá frétt Sýnar um að tekist hefði að losta háhyrninginn