Íslandsmótið í golfi á Korpu. Myndasyrpa frá lokahringnum í dag

9. ágúst 2026

Íslandsmótinu í golfi lauk í blíðskaparveðri á Korpuvelli GR í Grafarvoginum í dag. Völlurinn og umhverfi hans eru svo sannarlega borgarperla og einstakt útivistarsvæði.


Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði í karlaflokki og varði Íslandsmeistaratitil sinn frá því í fyrra. Það sama gerði Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. 


Glæsilegt hjá þeim.


Að sjálfsögðu lá leið okkar á Korpuna í dag.


Hér kemur smá myndasyrpa frá heimsókn okkar. - JGH

Fjöldi fólks mætti á Korpuna í dag og fylgdist með lokahringnum.

Tökumenn frá RÚV stóðu vaktina einbeittir mjög.

Áhorfendur fylgja kylfingunum eftir.

Korpúlfsstaðir. Þær gerast ekki reisulegri byggingarinnar. Klúbbhús GR er í nyrsta enda byggingarinnar.

Blíðskaparveður en svolítill vindur.

Þessi kom með útilegustólinn með sér. Fínt að geta tillt sér annað slagið.

Hvíta flaggið upp ef allt er í sómanum og ekki farið út fyrir vallarmörk. Fjöldi sjálfboðaliða frá GR var á vellinum

Þéttsettnar brekkurnar fyrir ofan flatirnar. Þetta er við 11. flöt.

Þessi var alveg hundafslappaður og lét sér fátt um finnast.

Fylgst með úr fjarska. Hvítu hælarnir eru vallarmörk.

Áhorfendur voru á öllum aldri.

Myndarlegt áhorfendastæði við átjándu holuna.

Keppendur í golfi eru í talsverðu návígi við tökumenn og áhorfendur.

Við klúbbhúsið við átjándu holuna.

Bikararnir tilbúnir til afhendingar. Kvennbikarinn til vinstri.

Hinn þekkti íþróttafréttamaður, Hörður Magnússon, flutti fréttir frá brautunum og við flatirnar.

Frá tíundu flöt og áhorfendur með á nótunum.

Svolítið einmana - en samt; hljóðið í útsendingunni þarf að vera í lagi.