Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, var að sjálfsögðu í sólskinsskapi á Korpunnni í dag
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands og forstöðumaður hjá Eimskip, lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á Korpuna í dag til að fylgjast með lokahringnum á Íslandsmótinu.
Hún var í sólskinsskapi og afar ánægð með gott Íslandsmót og frábæra umgjörð á Korpunni.
Hulda var um árabil þekkt fjölmiðlakona en flutti sig um set til Marels fyrir nokkrum árum.
Fyrr á þessu ári var hún ráðin til Eimskips sem forstöðumaður Menningar og miðlunar, nýrrar deildar á Mannauðs- og samskiptasviði Eimskips.
Kjarnakona Hulda, skemmtileg og lífleg í fasi og öflugur leiðtogi Golfsambandsins. - JGH

Það hefur verið nóg að gera hjá Huldu að undanförnu enda Íslandsmótið í golfi hápunktur golfsumarsins.

Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, á Korpunni í dag.


