Brynja og hennar fólk á Olís fagna ísnum með góðum ís-afslætti á 17. júní og næstu daga

16. júní 2026

Við sem erum frumbyggjar í Grafarvoginum munum vel eftir ísnum góða á Olís við Gullinbrú. Nú er ísinn kominn aftur líkt og ég tók eftir þegar ég tók þar bensín í hádeginu og skaust inn í kjölfarið eftir einum lottómiða.


„Jú, ísinn er kominn aftur á Olís,“ sagði Brynja Bjarney Vignisdóttir, verslunarstjóri kampakát þar sem hún stóð við nýju ísvélina sem var sett upp fyrr í vikunni.


„Við erum svo sannarlega tilbúin með ísinn fyrir morgundaginn, 17. júní og næstu daga. Á meðan við erum að venjast nýju ísvélinni og öllum þeim tilbrigðum af ís sem hún býður upp á þá ætlum við að gefa góðan 30% afslátt næstu daga,“ segir Brynja.


- Þú orðar það skemmtilega; ýmis tilbrigði af ís?


„Já, við bjóðum upp á alls kyns ís; barnaís, trúðaís, ís í brauðformi og pappaformi, ís með dýfu og kurli, bara að nefna það,“ segir Brynja og bætir við: „Það væri svo sannarlega gaman ef sem flestir kæmu hingað - börn sem fullorðnir - og fögnuðu þjóðhátíðardeginum með okkur út af því að ísinn er kominn aftur.“

Brynja Bjarney Vignisdóttir, verslunarstjóri Olís í Grafarvogi. Saga hennar er saga þjónustusinnaðrar konu sem hefur unnið sig upp í starfi.

Þeir sem rúlla reglulega við á Olís við Gullinbrú þekkja auðvitað allir Brynju. Hún er brosmild og glaðsinna svo eftir er tekið og hleypur í öll verk. Hún byrjaði að vinna á stöðinni með námi þegar hún var 17 ára og síðan eru liðin tíu ár.


Saga hennar er skemmtileg. Hún hefur unnið sig upp í starfi, afgreitt inni og verið úti við dæluna. Og fyrir rúmum tveimur árum var henni treyst fyrir verslunarstjórastöðunni.


Og hún situr ekki bara fyrir framan tölvuna á skrifstofunni heldur er hún mjög sýnileg öllum viðskiptavinum. Þannig á það líka að vera.


Að sjálfsögðu fékk ég hana til að hampa einum í brauðformi fyrir myndatöku og þar sem Gabríela Piechowska var við hliðina fannst mér gráupplagt að hún gerði það sama. Þær tóku sig vel út.

Brynja Bjarney Vignisdóttir verslunarstjóri og Gabríela Piechowska lyfta hér tveimur í brauðformi í tilefni þess að ísinn er kominn aftur á Olís við Gullinbrú.

Brynja er fædd á Ísafirði og ólst fyrstu tvö árin upp á Súðavík þegar fjölskyldan flutti suður á höfuðborgarsvæðið. Hún segir að Olís-stöðin við Gullinbrú sé nánast jafngömul byggðinni í Grafarvogi og hafi svo sannarlega sett svip sinn á gatnamót Gullinbrúar og Fjallkonuvegar í gegnum tíðina.


„Það hefur alltaf verið mikið að gera í sölu á bensíni og dísil hérna en stöðin er talsvert meira; líka verslun og veitingastaður. Við seljum mikið af pylsum og hamborgurum. Það er oft ansi líflegt hérna. St. Louis beikonborgarinn er vinsælastur.“


„Og svo erum við komin með ísinn. Ol-ís, hljómar það ekki ágætlega?“ segir Brynja og brosir. - JGH

Saga Brynju er skemmtileg. Hún hefur unnið sig upp í starfi á Olís við Gullinbrú, afgreitt inni og verið úti við dæluna sem starfsmaður á plani. Og fyrir rúmum tveimur árum var henni treyst fyrir verslunarstjórastöðunni.

Við bjóðum upp á alls kyns ís; barnaís, trúðaís, ís í brauðformi og pappaformi, ís með dýfu og kurli, bara að nefna það,“ segir Brynja.