Fréttin af tröllinu á Höfðabakka fór strax á flug. Hér kemur framhald. Fékk lögreglufylgd í morgun

16. júní 2026

Það var eins og við manninn mælt að fréttin okkar í gærkvöldi um tröllið á Höfðabakka sem beygt var niður að Vesturlandsveg um miðjan dag í gær fór strax á flug og fékk mikinn lestur. Enda sumir bílar lengri en aðrir.


En núna hefur þessi frétt fengið framhald.


Karl Arnar Ólafsson, ökumaður þessa ferlíkis, sá fréttina og sendi okkur tölvupóst og mynd af drekkhlöðnum trukknum í Þorlákshöfn fljótlega eftir að fréttin fór í loftið í gærkvöldi.


Þangað var hann einmitt á leiðinni í hádeginu í gær þegar hann beygði af Höfðabakkanum niður á Vesturlandsveg og litli Chevrolet Sparkinn, sem ég var á, fékk ekki væga heldur alvöru minnimáttarkennd.


Að sjálfsögðu er okkar maður Grafarvogsbúi. Það þarf alvöru fólk til að aka svona ferlíkjum.

Já, góðan og blessaðan. Vél sem kölluð er „niðurrekstrarvél“ hífð í land og svo var henni ekið upp á dráttarpallinn sem er einhver lengsti vagn sinnar tegundar á Íslandi.

Þegar við höfðum samband við Karl Arnar í dag þá sagði hann að ferðin til Reykjavíkur hefði gengið vel í morgun. Það var lögreglufylgd frá Þorlákshöfn, eins og gengur við svona kringumstæður, og alveg að áfangastaðnum sem var Kársnes í Kópavogi.


Þangað var ferðinni heitið þar sem Ístak er að smíða Fossvogsbrúna og „niðurrekstrarvélin“ verður notuð við brúarsmíðina.


Eflaust til að reka niður staura eða þil - hugsaði ég með mér; eða er það ekki rökrétt ályktun hjá okkur geimvísindamönnum?


En svona verða skemmtilegar fréttir til!  - JGH

Frétt okkar um þetta tröll í Höfðabakkanum fór strax á mikið flug og fékk þegar mikinn lestur. Úr varð framhald.