Fuglalíf við voginn. Þeir flutu hratt í útstreyminu í veðurblíðunni í morgun
Veðurblíðan í vetur styttir veturinn og gerir allt miklu léttara. Eini hvellurinn til þessa kom í lok október - og þá líka svo um munaði.
Það er ekki oft sem gengið er um á miðjum þorranum, dag eftir dag í 6 til 7 stiga hita, og nánast í sumarblíðu.
Það var útstreymi úr Grafarvoginum þegar Grafarvogur.net var á ferðinni í morgun og gaman að sjá sjófuglana fljóta með í útflæðinu fyrir framan Bryggjuhverfið.
Það eru fáir staðir á höfuðborgarsvæðinu - ef nokkrir - sem slá út gönguferðir á göngustígunum meðfram ströndinni í Grafarvoginum.
Nálægð við náttúruna, voginn og sundin blá er engu lík og afgerandi. - JGH

Æðarfugl og endur á útflæðinu í morgun fyrir framan Bryggjuhverfið.

Blikar og kollur.


