Holufyllt í Hamrahverfi - langur listi í viðgerðum á götum borgarinnar

2. febrúar 2026

Hin einmuna veðurblíða kemur að góðum nótum varðandi viðgerðir á götum borgarinnar því víða eru þær illa farnar og stórar holur hafa myndast í malbikið. Ein nokkuð stór og erfið var í Hlaðhömrum og var fyllt í morgun og síðan sléttstraujuð af þeim hjá Malbikunarstöðinni Höfða.


„Listinn er langur og við förum víða til að laga og holufylla,“ sagði Stefán Veigarsson, vinnuvélastjóri og gröfustjóri. „Það er átak í gangi. Við byrjuðum niðri í Sundagörðum í morgun og löguðum ansi stóra holu þar í malbikinu og síðan lá leiðin hingað upp eftir í Grafarvoginn. Það er af nógu að taka og það bætist sífellt á listann.“


Bíddu við - Stefán en það stendur Benni Palli á gröfunni? „Já, ég er að leysa kappann af í dag.“ - JGH

Hlaðhamrar í Grafaravogi í morgun. Átak í gangi hjá borginni við holufyllingar. Listinn er langur og það bætist sífellt á hann.

Stefán Vagnsson, vinnuvélastjóri og gröfumaður. „Byrjuðum í Sundagörðum í morgun og færðum okkur svo hingað upp eftir í Grafarvoginn.“

Stórvirk vinnuvél en handaflið er aldrei langt undan í gatnaviðgerðum. Jonas heitir hann þessi og er frá Litháen og talaði ágæta íslensku. „Ég er að læra íslensku og reyna að ná málinu.“