Eru alltaf jólin? Eru engin tímamörk á jólaskrautinu?

3. febrúar 2026

„Það eru ekki alltaf jólin,“ sagði íþróttamaðurinn forðum eftir að hafa tapað illa í kappleik eftir ágæta sigurgöngu. 


En það er þetta með jólaskrautið. Hvenær á að taka það niður og kveðja hátíðina? Sitt sýnist hverjum. Altént hefur sá tími lengst til muna sem jólaseríur prýða hús og híbýli frá því sem áður var þegar flestir tóku seríurnar niður eftir þrettándann; eða fljótlega eftir hann.


Margir setja jólaseríurnar upp um miðjan nóvember og hafa þær svo fram í miðjan febrúar, eða í þrjá mánuði. Jólaskraut einn fjórða af árinu! Það er talsvert. „Kannski eru jú alltaf jólin,“ eftir allt saman.


Hér er alls ekki hvatt til þess í því reglugerðarsamfélagi sem við búum í að njörva niður og fastsetja e-h tíma sem jólaseríur eiga að skína og lýsa upp í skammdeginu.


Það verður hver að hafa þetta eins og hann vill.


En það er svosem allt í lagi að pæla í því hvort það séu engin tímamörk á jólaskrautinu. - JGH

Smekklegt og fínt - og minnir svo sannarlega á jólin. Er einhver eðlismunur á því að vera með marglitar perur eða hvítar þegar kemur að því að vera með jólaseríur langt fram í febrúar? Að það sé í lagi að hafa kveikt á þeim hvítu lengur.

Einlitar hvítar. Finnst fólki að einlitar ljósar perur sé jólaskraut sem geti varað lengur inn í febrúar? Það er nú það, allt er þetta smekksatriði.

Þetta fallega tré á hæðinni við Borgaveg og Melaveg er sett upp í lok nóvember af Reykjavíkurborg - og skreytingin gerir það að jólatré í hugum flestra. Það skartar sínu fegursta komið fram í febrúar.

Sama tré og horft til suðurs með höfnina m.a. í baksýn.

Jólalegt í febrúar. Marglita jólasería.