Styttra getur það vart orðið fyrir steypubíla BM-Vallá! Aðeins nokkur hundruð metrar

20. maí 2026

Það verður varla styttra að fara fyrir steypubílana hjá BM-Vallá. Verið var að steypa gólfplötu við Bíldshöfða 9a í hádeginu í dag en aðeins nokkur hundruð metrar er í steypustöð BM-Vallá sem er við Bíldshöfa 7. Það þarf þó að fara yfir ein gatnamót.


Þetta er besti dagur vorsins til þessa og að sjálfsögðu nota menn tækifærið á svona dögum í steypuvinnu.


Byggingin sem verið er að vinna í og reisa er nánast alveg ofan í Höfðanum þar sem meðal annars er heilsugæsla, aptótek, mathöll og fleira. 


Enda er stutt á milli; Höfðinn er við Bíldshöfða 9 og nýbyggingin við 9a, en um er að ræða 8 hæða skrifstofubyggingu. - JGH

Styttra verður það vart að fara fyrir steypubílana. Hér er verið að steypa 8 hæða skrifstofubyggingu við Bíldshöfði 9a en steypustöð BM-Vallá er við Bíldshöfða 7.