Grafarvogur í gamla daga - hér er fróðleg byggingarsaga úr Gerðhömrum
Á göngu minni nýlega við Grafarvoginn hitti ég Örn Ómar Guðjónsson, nágranna minn hér í Hamrahverfinu og frumbýling við Gerðhamra 25, en gatan var valin fyrirmyndargata í Grafarvogi árið 2008.
Í ljós kom að við höfðum unnið saman eitt sumar í byggingarvinnu sem unglingar. Skemmtileg tilviljun.
Við erum báðir frumbýlingar í hverfinu og eðlilega barst talið að því hvernig þetta hefði verið í gamla daga þegar hverfið var að rísa, allir bösluðu og byggðu og fluttu nánast inn á nýmálaðan steininn í draumahúsunum sínum.
Svo kláruðust híbýlin hægt og sígandi; með tíð og tíma. Strax-línan var ekki komin.
- Heyrðu Jón, ég tók svolítið af myndum frá byggingartímanum sem fólk hefði kannski gaman af að skoða, sagði Örn Ómar.
- Líst mér vel á það, svaraði ég að bragði.
Árið var 1989 þegar fyrsta skóflustungan var tekin að grunni Gerðhamra 25. Lengi býr að fyrstu gerð.
Grafarvogur í gamla daga; gjörið svo vel.
- JGH

Gerðhamrar 25 árið 1990. Ekkert Bryggjuhverfi risið. Byrjað var á því í kringum 1997.

Þrjátíu og sex árum síðar; maí 2026.

Þessi mynd er líklegast tekin 1985 og gatnagerð í Hamrahverfinu í gangi en það var þriðja hverfið sem reis í Grafarvogi.

1989. Horft niður Gerðhamra og yfir að Ártúnshöfða; Stórhöfða.

Hér má sjá að Gullinbrú frá Höfðabakkanum var aðeins með eina brú og tvær akreinar, í sitt hvora áttina. Það var í kosningunum 1998 sem Grafarvogsbúar báðu menn um að vakna.

Okkar maður, Örn Ómar Guðjónsson, undir stýri á leigugröfu; húsbyggjendur óðu í öll verk.

Árið 1989. Botlanginn við Gerðhamra 25. Þarna fyrir neðan eru einhverjir þekktustu göngustígar borgarinnar meðfram Grafarvoginum, gegnt Bryggjuhverfinu.

Sama sjónarhorn og á myndinni á undan. Mynd var tekin í rigningunni í dag til að ríma við rigningarsuddann á myndinni frá 1989.

Og sami botnlangi í aðeins betra veðri í maí sl.

Hugur í fólki og húsin þjóta upp.

Húsið hér til vinstri er þar sem bílunum er lagt á myndinni hér að framan - og horft upp Gerðhamrana að Lokinhömrum.

Róm var ekki byggð á einum degi.

Fyrirmyndargata Grafarvogs 2008.

Árið er í kringum 1993 og Hamrahverfið farið að taka á sig smá mynd. Nánast enginn gróður kominn. Myndin er tekin frá Svarthöfða sem liggur frá Stórhöfða niður í Bryggjuhverfið.

Árið 1990 og verið að steypa plötuna.

Gerðhamrar 25 um þrjátíu og sex árum síðar. Skemmtileg byggingarsaga.

