Dagbjartur og Guðrún Brá sigruðu á Íslandsmótinu í golfi og vörðu bæði titla sína

9. ágúst 2026

Dagbjartur Sigurbrandsson, Golfklúbbi Reykjavíkur, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, eru Íslandsmeistarar í golfi 2026.


Íslandsmótinu lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag, en bæði náðu þau að verja titil sinn frá síðasta ári.


Þetta er í fyrsta skiptið frá árinu 1992 sem báðir titlarnir eru varðir.


Glæsilegt.


Við óskum þeim til hamingju með sigurinn. - JGH