Mottumars og skeggkeppnin að baki. Björgvin Ingi og Olís-motturnar sigruðu

27. mars 2026

Mottumars er að baki og úrslit í skeggkeppninni voru tilkynnt fyrr í dag, föstudaginn 27. mars. Mottumars hefur fyrir löngu öðlast sinn fasta sess og það er jafnan ánægjulegt að sjá hvernig fyrirtækið Landsnet styður við bakið og kynnir þetta verkefni á áberandi hátt á húsakynnum sínum við Gylfaflöt. 


Það var Björgvin Ingi Ólafsson sem var hlutskarpastur í skeggkeppni einstaklinga og Olís-motturnar sigruðu liðakeppnina en úrslitin voru kynnt fyrr í dag.


Hátt í 130 manns og 20 lið tóku þátt í Skeggkeppninni í ár og söfnuðust tæplega 5 milljónir króna.


Skeggkeppnin er fastur liður í Mottumars, árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins, en þar geta einstaklingar og lið safnað safnað skeggi og áheitum til styrktar Krabbameinsfélagsins og lagt sitt af mörkum til að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og líði betur. - JGH

Í einstaklingskeppninni varð Björgvin Ingi Ólafsson hlutskarpastur, fyrir miðju, Guðmundur Guðmundsson, til hægri, hreppti annað sætið og Ágúst Kristján Steinarsson það þriðja.

Hér eru alvöru mottur. Sigurvegarar í liðakeppninni voru Olís-motturnar, Torcargo snjallmottur urðu í öðru sæti og í því þriðja varð B-vakt Flugvallarþjónustu KEF.

Olís-motturnar sigruðu í liðakeppninni.

Það er alltaf jafn ánægjulegt að sjá hvernig fyrirtækið Landsnet kynnir og auglýsir mottumars á húsakynnum sínum við Gylfaflötina.