Hrafnhildur Árnadóttir, fyrirliði Fjölnis, ánægð með aðsóknina: Mikil orka frá áhorfendum!
Hrafnhildur Árnadóttir, fyrirliði Fjölnis og nýkrýndur Íslandsmeistari í 2. deild kvenna í knattspyrnu var að vonum ánægð með titilinn og sagði að mikil liðsheild hefði landað honum.
„Við erum allar miklar vinkonur í liðinu og höfum æft mjög vel,“ sagði hún glöð í sinni eftir leikinn. „Við höfum ekki spilað fyrir svo marga áhorfendur í langan tíma og það var mikil orka sem við fengum frá stuðningsmönnunum okkar í dag,“ bætti hún við.
„Takk Grafarvogsbúar fyrir að mæta á völlinn og styðja okkur.“
Svo sannarlega hægt að taka undir þau orð.
En við skulum sjá hér stutt sjónvarpsviðtal okkar við hana eftir leikinn og heyra hvað hún hafði að segja.
Gjörið svo vel. -JGH
Sjá hér viðtal við Hrafnhildi Árnadóttur, fyrirliða hins glæsilega liðs Fjölnis.


