Að sjálfsögðu var stuð og stemning á leiknum. Takturinn ákaft sleginn!

12. september 2026

Það var heldur betur stuð og stemning á leiknum við Vestra í dag og þær Fjölniskonur fengu dyggan stuðning frá áhorfendum sem mætu með bros á vör á völlinn í bongóblíðu.


Allir í sólskinsskapi og Grafarvogsbúar svo sannarlega vel með á nótunum.


Þessi vösku piltar slógu taktinn af ákafa allan leikinn og léku kjuðarnir í höndum þeirra.


Gleðidagur í Grafarvogi í dag.


Íslandsmeistaratitill í höfn og sigur í 2. deild kvenna og munu okkar konur spila í Lengjudeildinni á næsta ári.


Enn og aftur:


TIL HAMINGJU MEÐ TITILINN. - JGH

Þær völdu sér þetta handrið sem áhorfendastæði.

Talsverð kúnst fyrir þær að halda sér þarna.

Þessi fékk nú ekki að halda lengi á þessum brúsa.

Sumir mættu á glæsikerru á völlinn og fóru síðan á stjá.

Áfram Fjölnir.

Fínt að fá sér smá bita á leiknum.

Þeir voru margir stuðningsmennirnir á vellinum í dag.

Gljáfægður bikarinn sem fór á loft í Grafarvoginum í dag.