Hörkuleikur í kvöld. Öðrum þessara fána verður flaggað nk. sunnudag í Grafarvogi!
Það voru margir með fráhvarfseinkenni á sunnudagskvöld sem og í gærkvöldi vegna HM í knattspyrnu. Engir leikir - og hvað eiga bændur þá að gjöra?
Það er leikur í kvöld og enginn smá leikur því sumir telja að tvö bestu liðin í keppninni eigist við í fjögurra liða úrslitunum - Frakkland og Spánn - og þetta sé hinn eiginlegi úrslitaleikur.
Flestir telja að Frakkar séu sigurstranglegri en Spánverjar eru engir aukvisar í boltanum og Frakkarnir ganga að engu vísu í kvöld.
Þetta er lokavikan á HM og hinn leikurinn í fjögurra liða úrslitunum er annað kvöld þegar Argentínumenn mæta Englendingum.
Lokaleikurinn, úrslitaleikurinn, verður svo nk. sunnudag í New York.
Og auðvitað höldum við okkur áfram með fána hans Ólafs Sverrissonar í Grafarvogi þegar við segjum frá HM í knattspyrnu.
Þeir eru tengingin og hún er skemmtileg.
- JGH

Hvor þjóðin verður ofan á í kvöld?
Tvö bestu liðin? Er þetta hinn raunverulegi úrslitaleikur?


