Betra er seint en aldrei. Minni slysahætta við Sorpu eftir ábendingar frá Grafarvogur.net
Betra er seint en aldrei. Við á Grafarvogur.net höfum skrifað nokkrar fréttir og vakið athygli á verulegri slysahættu vegna biðraðarinnar við Sorpu við Sævarhöfða sem viðgengist hefur til margra ára.
Núna hefur Sorpa gert bragarbót á fyrirkomulagi raðarinnar og látið gera aukaslóða fyrir utan veginn fyrir þá sem bíða í röð eftir að komast inn á Sorpu.
Vel gert.
Hættan er þó ekki liðin hjá því þegar bílar í röðinni þvera veginn inn í innkeyrsluna hjá Sorpu þarf að hafa varann á sér vegna bíla sem aka á hægri akreininni í norður eftir Sævarhöfðanum og eru á blindu hliðinni fyrir þá sem bíða í röðinni.
Hvað um það, röðin var áður til hálfs inni á veginum og skapaði það mikla hættu.
Núna er búið að laga það. Ennþá er hins vegar mikill hraðakstur á þessum slóðum við Sorpu.
Til stendur að Sorpa verði flutt af Sævarhöfðanum í næsta mánuði upp í Úlfarsárdal við Lambhagaveginn.
Stutt þangað til.
En betra var seint en aldrei að bæta úr þeim annmörkum sem fylgdu fyrra fyrirkomulagi. - JGH

Gengur betur fyrir sig núna og minni slysahætta. Hraðakstur er þó töluverður þarna.

Hættulegt. Farþegi í einum bílnum sem missti þolinmæðina og rauk út gangandi með pokana. Gekk um stund á veginum.

Hér er talsverð hætta á ferð þegar ökumenn þvera yfir veginn inn í innkeyrsluna hjá Sorpu. Umferðin í norður eftir Sævarhöfðanum er á blindu hliðinni.


