Þetta er hún Lína langsokkur, býr í Foldunum, og er af Havanakyni

2. febrúar 2026

Göngustígurinn í Hamrahverfinu í Grafarvogi meðfram sjónum er með þeim bestu í bænum. Þar rakst Grafarvogur.net á hana Línu í veðurblíðunni í morgun. Hún býr í Foldahverfinu og er stundum kölluð Lína langsokkur. Hún var þar í gönguferð með eigendum sínum, þeim Guðrúnu Birgisdóttur og Chuck Mack.


Lína er 2ja ára og sérlega fallegur hundur. Hún er ættuð frá Kúbu, af svonefndu Havanakyni. „Hún er ofboðslega þægileg,“ segir Guðrún. „Ég átti tvo Cavalíer-hunda áður en Lína tekur þeim fram, finnst mér. Hún fer ekki úr hárum sem er algjör lúxus við Havanakynið og þá eru þeir einstaklega barngóðir. Og þótt þeir séu svona litlir eru þeir mjög duglegir og fara í fjallgöngur með eigendum sínum ef því er að skipta. Þeir eru áberandi hraustir og harðir af sér.“


Þau Guðrún og Chuck Mack búa í Funafold og segja að fyrir vikið sé hún stundum nefnd Lína Funafold af barnabörnunum þótt Lína langsokkur sé mun algengara og skemmtilegra „Hún elskar börn og er ólm í að leika við barnabörnin. Hún vill helst kúra undir sæng með þeim þegar ég er að passa þau og hafa það kósý.“


Guðrún vann um árabil í Háskóla Íslands - en var blaðamaður á árum áður og vann meðal annars á Vikunni undir ritstjórn Sigurðar Hreiðars.


Chuck Mack er bandarískur og þekktur hönnuður; hannaði m.a. Gírafastólinn svonefnda sem er hluti af Chuck Mack Design. 


Þau hafa búið í Grafarvogi í um aldarfjórðung. Gaman að rekast á þau í morgun. - JGH 

Lína með eigendum sínum í morgungöngunni, Guðrúnu Birgisdóttur og Chuck Mack hönnuði.

Lína er barngóð og algjör töffari. Vill helst kúra undir sæng með barnabörnunum og hafa það kósý.