Höfnin fögur frá Hamrahverfi séð

17. febrúar 2026

Höfnin er fögur frá Hamrahverfi séð. Þær eru fáar gönguleiðirnar á höfuðborgarsvæðinu sem eru jafn tilkomumiklar og sú sem liggur meðfram ströndinni í Hamrahverfinu í Grafarvogi. Það var sérlega vel til fundið hjá borginni að leggja fyrir nokkrum árum hinn mjög svo öfluga göngustíg meðfram Gufuneshöfðanum alveg niður við sjávarmál. Borgarljós og bakki hafnar blasa við nánast í seilingarfjarlægð með stórborgarbrag, hinum megin.


Í kaldri kvöldgöngunni var næðingur og svolítill Kári í lofti. Hressandi með meiru, ekki síst eftir heiðarlegt saltkjötsát og baunaða súpu með bitum í. Sprengidagur að kveldi kominn og ber hann það nafn með sanni.  - JGH 

Hafnarbakki hinum megin.

Bryggjuhverfið ljósum baðað.

Hinum megin og hérna megin.