Gönguferð „heim“ í Logafold frá Langholtsvegi með hana Sölku - Gunnar í fjölskyldunni sem flutti fyrst í Grafarvoginn

1. mars 2026
Hann var einn af fjölmörgum sem fékk sér göngutúr í hádeginu á göngustígnum við Grafarvoginn. Ég tók hann tali þegar ég var að mynda undir brúnni, Gullinbrúnni sjálfri, en þar er oft mikil traffík þótt ekki sjáist hún frá veginum.

Gunnar Hrafn Arnarsson heitir maðurinn, býr við Langholtsveginn, en var á leiðinni „heim“ í Logafoldina með Labradorhundinn sinn, hana Sölku. 

- „Heim,“ spurði ég. „Jú, ég er alinn upp í Grafarvoginum og er að trítla með hana Sölku í smá kaffi til pabba og mömmu sem búa í Logafoldinni.“ 

Gunnar Hrafn Arnarsson, fyrrum íbúi í Grafarvogi. Og meira en það; í fjölskyldunni sem flutti fyrst í Grafarvogshverfið árið 1984. Hann er sonur hjónanna Arnars Sigurbjörnssonar (Adda í Flowers) og Sigrúnar Sverrisdóttur.

- Auðvitað þurfti ég að fá meiri vitneskju um hann, þetta hefðbundna hverra manna hann væri.


 Í ljós kom að hann er í fjölskyldunni sem flutti fyrst inn í nýja Grafarvogshverfið árið 1984; sonur Arnars Sigurbjörnssonar, Adda í hljómsveitinni Flowers, og Sigrúnar Sverrisdóttur. Sjá viðtal Grafarvogur.net við Arnar hér.


- Hvað ertu lengi frá Langholtsveginum í Logafoldina? „Yfirleitt svona í kringum þrjú korter. Ég bý nálægt Herkastalanum, húsi Hjálpræðishersins, alveg syðst við Langholtsveginn þannig að ég er fljótt kominn niður að Elliðavoginum og geng svo meðfram ströndinni og í gegnum Bryggjuhverfið.“


Salka er orðin 12 ára sem telst hár aldur hjá svona stórum hundum - sem Labradorinn er. „Jú, hún er farin að reskjast en fer þó enn nokkuð léttilega þessa leið upp í Logafoldina.“ 


- Er pabbi þinn eitthvað að þenja rafmagnsgítarinn ennþá í bílskúrnum í Logafoldinni? „Nei, en kassagítarinn er þeim mun meira á lofti í stofunni.“ 


Hressilegur Grafarvogsbúi, Gunnar, og frumbyggi í hverfinu.


Gaman að spjalla við hann. - JGH

Gunnar Hrafn Arnarsson með hana Sölku sem er orðin tólf ára en trítlar en nokkuð léttilega frá Langholtsveginum upp í Logafold.

Hljómsveitin Flowers, 1967 til 1969, var súpergrúppa á sínum tíma. Frá vinstri: Karl Sighvatsson, Jónas R. Jónsson, Sigurjón Sighvatsson, Gunnar Jökull Hákonarson og Arnar Sigurbjörnsson.