Hluthafaspjall ritstjóranna: Stórfróðlegt viðtal við Jón Þorstein nýjan forstjóra Beru

25. apríl 2026
Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru, var viðmælandi okkar Sigurðar Más Jónssonar í nýjasta þætti Hluthafaspjalls ritstjóranna á efnisveitunni Brotkast.is.

Bera var nafn á móður Egils Skallagrímssonar og það varð fyrir valinu þegar nýtt skipulag var kynnt á starfsemi Ölgerðarinnar í endaðan febrúar sl. 

Bera er núna móðurfélag samstæðunnar og skráð í Kauphöllina en undir fyrirtækið heyra núna fjögur félög og er Ölgerðin eitt þeirra. 

Jón Þorsteinn segir að með nýju skipulagi sé verið að skerpa línur og fá skýrari sýn og markmið á hverja einingu fyrir sig. Undirfélög Beru eru Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur. 

Þá tókum við Sigurður Már stöðuna í efnahagsmálum og spyrja sig hvort ríkisstjórnin hafi misst tökin og fókusinn á efnahagsmálin með því að leggja alla áherslu núna á ESB-viðræður. 

Þá ræddum við ruglið í danska Berlingske um íslenskan sjávarútveg og að þúsundir íslenskra hluthafa í stærstu skráðu íslensku sjávarútvegsfyrirtækjunum séu einhverjir „rússneskir ólígarkar“ en ólígarkar eru jafnan kenndir við Rússland eftir að járntjaldið féll og notað um menn sem sölsuðu undir sig fyrirtæki í eigu almennings.

Íslens sjávarútvegsfyrirtæki byggja hins vegar á gömlum merg og hafa verið byggð upp eftir um 40 ára gömlum lögum og leikreglum stjórnvalda um kvótakerfið og þar sem virðisaukinn liggur mjög svo í fullnýtingu aflans og frábæru marðasstarfi fyrirtækjanna á erlendum vettvangi.

Öflugur þáttur að venju.  - JGH 

Hér má sjá þáttinn í heild sinni.