Hluthafaspjall ritstjóranna - Heiðrún Jónsdóttir gestur okkar að þessu sinni
Það var ánægjulegt að fá Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, til okkar Sigurðar Más Jónssonar í Hluthafaspjall ritstjóranna en þátturinn var tekinn upp í hádeginu í gær og er sýndur á efnisveitunni Brotkast.is.Heiðrún mætti í seinni hlutann hjá okkur.
Þegar við hófum samtalið við hana rifjaði ég upp að hún hefði verið í viðtali í Frjálsri verslun árið 1999 þegar hún varð önnur tveggja sem fyrstar kvenna settust í framkvæmdastjórn fyrrum stórveldisins við Eyjafjörðinn, KEA.
Það var skemmtileg upprifjun - sem og auðvitað allt samtalið við hana þar sem farið var inn á sparnað Íslendinga, stærð bankanna (stórir fiskar í lítilli tjörn), sértæku bankaskattana, fjármálalæsi unglinga, arðsemi bankanna, eigið fé þeirra, minni rekstrarkostnað - og nýlega ráðstefnu um hvernig megi efla íslenska hlutabréfamarkaðinn og hvort Daði Már ætti ekki að taka upp gamla, góða skattaafsláttinn fyrir einstaklinga við kaup á hlutabréfum.
Heiðrún er flestum hnútum kunnug í viðskiptalífinu og hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja ásamt því að sinna lögmannsstörfum. - JGH

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.


